Henny Melsen
Hitt og þetta
Tenglar
Þetta er eitthvað sem ég er ekkert að gera í
28.03.2009 16:40:44 / henny

Working me

Yes, I'm at work
Yes, it's Saturday
Yes, I should certainly not be blogging

But, hey, it's Saturday, I 'm at work and I felt like taking a little breather. I went online and checked out the Icelandic newspaper Morgunblaðið and there were some blogs on there, so to (a dark and v. hot place) with it and here I am blogging.

I've absolutely nothing to report. Well, the other day as I was driving home I got a brilliant idea for a blog post (I thought it was brilliant, anyway) but when I got home I had so much to do and I didn't feel justified in taking time away from my duties to blog, hence no blog and now I've totally forgotten what I wanted to blog about.

But I remember that the drive home was a good drive home. I mean, the weather was beautiful, the radio played some good songs and just everything seemed to click 'just so'.

News:
We'll be welcoming our first guests from the United Kingdom since we moved over. We're very excited and very much looking forward to seeing Ian and Travis. We've been pondering about things to do and the result is, well not anything to write home about, so I won't bother putting it on here. But I am confident that we'll sort something out. The Boys on Tour shall and will not have an uneventful trip. And I mean that as positively as possible.

Life in general:
I have been very fortunate. I have a job.
And not only do I have a job, but I have a job which I thoroughly enjoy.
Although getting mixed up in this Staff Organizing Thing, which is reason for me being at work on a Saturday was perhaps slightly ill thought out. But it's not like it's all Saturdays, and as soon as I get the book-keeping under control, Saturdays at work doing book-keeping are history.

Other:
I joined Twitter the other day. Found out that not a single person in my address book was on there. I know that I'm really bad at maintaining my address book, but wow, that really sucked. Still I have managed to get 3 followers, so I'm feeling quite chuffed anyway.

Work:
Better get back to it - Over and Out

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2008 23:31:57 / henny

Time goes by

Yes and not only time, but also money and all that stuff.
But never mind.

Staurt and I are thinking about getting a couple of gerbils and I am quite looking forward to that.

My other big news are that I have not been a work since last Monday... Yes, I know, I have been very lazy but yesterday evening I went and got some help for that and the good doctor prescribed me with some penicillin - for the next 10 days.
Turns out that my little cold/flue was a bit more than just that... and was in fact some sort of virus/bacteria. No wonder I have been feeling so rotten.
But hopefully I will be able to go back to work on Monday :-)

Anyway - nothing more to report, best to get on with being ill.... there is nothing else to do!

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2008 13:29:02 / henny

Í dag er góður dagur

Ég hef átt mér lítið ljótt leyndarmál undanfarið. Svo ljótt að ég hef ekkert getað tjáð mig mikið um það.... Ég var ekki búin að skila inn skattframtalinu!! Var búin að gera svo gott sem allt en var að lenda í vandamálum með eyðublað 3.19, eða hlutabréfaeign og sölu og það allt.
Svo komst ég að því að ég gæti verið sektuð fyrir þetta, eins og að svefnleysið og stressið og samviskubitið væri ekki nóg, þá átti að vera fjárhagsleg refsing til viðbótar! En jæja, ég fór til endurskoðanda núna áðan eftir vinnu (Þetta var NB 19. maí) og þetta er farið, búið, finito.
Kom þá ekki í ljós að þetta var piece of cake, ég hefði getað klárað þetta sjálf á no time...!! En kallinn rukkaði mig um 10.000!! Fyrir nokkura mínútna vinnu!! En jæja, þetta er allavega farið og búið. Já og finito líka.

Þórunn vinkona átti afmæli 10 maí - til hamingju með daginn! Ég hugsaði og hugsaði til þín og vildi ekki senda sms því ég ætlaði að hringja en svo klikkaði það og þá skammaðist ég mín svo mikið að ég gerði bara ekki neitt. En það er smá sjúrprís alveg á leiðina í póst til Spanjólalands :-) ...ætli að það komist ekki á leiðarenda í tíma fyrir næsta afmæli :-)

Góða helgi





» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2008 13:26:58 / henny

Hvar er orðabókin?!

Það koma stundum upp atvik í vinnunni þegar að útlendingar reyna að hafa einhver samskipti við okkur hérna á skrifstofunni og geta ekki tjáð sig sérstaklega vel. Þá hefur oft komið sér vel að búa með Englendingi og hafa mikið umgengist þessa útlendinga erlendis.
Svo var það um daginn að ég skrapp aðeins í ritfangaherbergið og var eitthvað að leika mér þar - voða spennandi að leita að heftum í sjálfvirku heftimaskínurnar... sem er NB ekki til, en já... - Þegar ég kom aftur þá frétti ég að mín hefði verið leitað v/ einhvers plaggs á þýsku og spurningunni: Hvar er orðabókin okkar? velt fram.

Gaman að þessu :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 14:13:26 / henny

Fjölskyldan í afmælisheimsókn

Hæ,

Já, ég var réttilega minnt á afmælið sem ég hélt upp á fyrir familíuna..!! Klikkaði soldið á því þar sem að það var ekki haldið á sjálfum afmælisdeginum.
En já það var einnig alveg yndislegt og sérstaklega gaman að Katrín systir var með þar sem hún var í bænum að passa krakkaskarann hans Viktors bróður.
Og svo ennþá skemmtilegra var að Katrín kom með krakkaskarann með sér :-)
Mjög gaman hvað það var vel mætt, það er svo gaman að sjá fólkið í familíunni!!
Þannig eiga afmæli að vera!
Mamma og Katrín- Takk kærlega fyrir alla hjálpina!! Hefði ekki getað haldið upp á þetta án ykkar aðstoðar :-)
Hendi inn nokkrum myndum frá þessu...

     

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 22:20:02 / henny

Lífið er yndislegt, ég geri það sem ég vil

Tja, kannski ekki alveg... ja sko, kannski ekki einu sinni nálægt því, en þetta hljómar rosalega vel :)

Annars er fínt að frétta af mér. Þetta er búið að vera langur tími sem hefur runnið sitt skeið og voðalega lítið að gerast. Ég átti afmæli og það var svo gaman hjá mér. Að fá að eyða svona stundum með vinum er alveg ómetanlegt. Það er svo alveg satt að vinir eru fjölskyldan sem maður velur sér.

Stuart er kominn með sitt eigið blog, hefur reyndar verið með það í nokkra mánuði en ekkert skrifað á það fyrr en núna. Er mjög stolt af honum :-)

En já, bið ykkur vel að lifa og ég hef svo kannski frá einhverju að segja næst...!!

Yfir og út,
Henný

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.12.2007 15:30:47 / henny

Það er naumast!!

Vá, það mætti halda að við flutninginn hafi maður horfið af yfirborði jarðar! En það er nú ekki svo. Við Stuart byrjuðum að vinna daginn eftir við lentum og síðan þá er búið að vera brjálað að gera og allt að gerast.

Við vorum ekkert að hangsa við hlutina heldur keyptum okkur íbúð í Hafnarfirði. Þetta gerðist mjög snöggt en við létum vaða og held ekki að við sjáum neitt eftir þvi. Það er rosalega gott að vera í sínu eigin. Verst er bara hvað allt er dýrt og vextirnir háir. Það er bara heppni að við gátum keypt og þökk mikilli hjálp frá góðu fólki.

Við keyptum gólfteppi og Þorsteinn hennar Huldu kíkti til okkar og hreinlega reddaði málunum, við Stuart höfðum ekki hugmynd um hvernig þetta ætti að gerast. Svo fengum við gáminn og bárum allt inn sjálf, Heija kom sem betur fer og hjálpaði og við hefðum ekki getað gert þetta án hennar!!

Í vinnunni er nóg að gera hjá okkur báðum, Stuart þarf alltaf að vinna frameftir á fimmtudögum en það hefur verið í fínu lagi. Ég hef ýmist fengið far heim eða hann skutlað mér heim. Síðasta fimmtudag var ég reyndar lengur í vinnunni og beið eftir honum - það var alveg nóg að gera hjá mér svo mér leiddist svo sannarlega ekki.

Þetta er búið að vera soldil rússíbanaferð finnst mér hjá okkur - eiginlega eins og við séum ekki ennþá búin í ferðinni því að mér finnst ég ekki komin niður á jörðina ennþá!

En jæja, best að fara að reyna að sinna jólaundirbúningnum, það er af nógu að taka!


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 13:28:01 / henny

Skólarnir að byrja og ég að verða rosalega bresk eitthvað!!

Það er alveg á hreinu að skólarnir eru að hefjast. Afslappandi sunnudagur og svo gott sem ekkert í imbanum svo ég er bara að surfa netið og imbinn í gnagi. Það er verið að sýna Ugly Betty þættina frá upphafi og ég er svona að glápa á þetta með öðru auganu.

Það sem svo vakti athygli mína er að í auglýsingahléinu var alveg þvílíkt löng auglýsing fyrir 'lúsaeyðir', svo greinilegt að skólarnir eru að byrja. Man alltaf eftir því þegar Abigail var að segja okkur Stuart frá því að í einhverjum tímanum þá biður einn af kennurunum einn nemandann um að sitja með plastpoka á höfðinu því hún er með lús. Það er víst, wait for it, ekki ok að segja foreldrunum að þeir VERÐI að gera eitthvað í málinu, né heldur að segja þeim að krakkinn komi ekki aftur í skólann fyrr en eitthvað sé gert. Yndislegt alveg. En þettta er stórt vandamál og börn eru alltaf að fá miða heim með upplýsingum um nýjan lúsafaraldur.

En já að allt öðru, kannski ekki seinna vænna en að gerast aðeins 'anglified' svona rétt áður en maður flytur frá landinu. Er búin að drekka 3 tebolla í morgun! Alveg ótrúlegt hreint. Eftir að ég flutti suðureftir er ég farin að drekka þetta í vinnunni og nú er þetta orðið alvarlegt þar sem þetta er komið inn á heimili mitt. Best að fara að safna fullt af enskum tepokum fyrir flutninginn.


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 11:30:35 / henny

Alltaf allt að gerast

Það er bara alltaf allt að gerast hérna hjá okkur í Englandi! Nú eru nýjustu fréttir þær að við Stuart ætlum að leggja land og haf undir fót, pakka öllum okkar eigum niður og halda á vit nýrra ævintýra..... á Íslandi!

Já eitthvað sem kemur mér mikið á óvart, en svona er þetta nú og hananú. Viðurkenni alveg að ég er ekki alveg búin að átta mig á þessu ennþá, finnst þetta mjög skrýtið allt saman.

Semsagt þessi helgi fer í að panikka örlítið og svo vonandi að pakka eitthvað niður því ekki veitir af!!

En þannig er það og eftir þessar fréttir finnast mér allar aðrar fréttir eitthvað svo ómerkilegar svo ég læt staðar numið hér í bili.


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 19:11:44 / henny

Allt að gerast

Já það er ekki laust við að enn og aftur sé allt að gerast!

Úrslitin úr skoðanakönnuninni orðin ljós

Helst er að segja frá því að bráðum fer að koma ný skoðanakönnun því að nú er komið að sumarfríinu. Víð Stuart erum búin að bóka viku 33 frá vinnu og höfum pantað farmiða til Íslands þá vikuna. Verðum frá 10 - 18 ágúst og vonumst til að hitta sem allraflesta!! Svo endilega hafa samband við okkur.

Fartölva / Ferðatölva

Húrra, hafði það af! Er búin að panta mér slíkan grip frá Dell - notaði til þess slatta af spariféinu okkar (úps)! en gripurinn er mættur á svæðið og viti menn, virkar svona líka vel. Meira að segja þráðlausa internetið virkar frá BT svo það er einungis gott um þetta að segja. Þetta er tölvan og ég er mjög ánægð, takk fyrir :)

Og svei mér þá ef það er ekki bara það, ekki frá neinu öðru merkilegu að segja í bili.

 Yfir og út - Henný


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 11:25:38 / henny

Harry Potter, Child Line og rigning

Það er opinbert, hér er eitthvað að. Heyrði í fréttum í morgun að Child Line, sem er svipað og barna og unglingalína Rauða krossins er búið að bæta við fólki á vakt vegna útgáfu nýju Harry Potter bókarinnar. Þetta er vegna þess að það börnin gætu þurft á ráðgjöf að halda vegna frétta um að einhver deyi í bókinni. Já sé að þetta er greinilega þarna uppi á vandamálalistanum ásamt einelti, barsmíðum og unglingaóléttu.

Annars er bara RIGNING hérna, daginn út og in - hætt að lítast á blikuna. M25 er lokaður á kafla vegna þess að hann er á floti svo ég veit ekki einu sinni hvernig  og hvenær ég kemst heim og ég sem á að vera mætt í þetta góðgerðadjamm um klukkan 19.00!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 20:12:48 / henny

Ferðatölva

Ég er búin að vera að láta mig dreyma í lengri tíma um að eignast ferðatölvu. Gamli garmurinn er einmitt það, gamall og úr sér genginn og ekki mikið líf eftir í honum. Svo síðasta laugardag, eftir að ég kom heim úr ræktinni stakk ég upp á því við hann Stuart að við færum á pöbbinn, myndum borða þar og fara svo á hans gamla hverfispöbb. Hann tók vel í þetta svo úr varð margra klukkutíma útstáelsi. Eftir nokkra bjóra var um margt spjallað og þar á meðal um fartölvudrauma mína og var í hálgerðu bjórmóðu ákveðið að á sunnudegi færum við að skoða/versla. Viti menn, sunnudagsmorguninn rann upp og þessu mundi hann Stuart eftir svo við fórum í PC World, m.a.s. tvær mismunandi búðir. Til að gera langa sögu stutta þá var það glatað, PC World var bara GLATAÐ og LÉLEGT og ég ákvað að þarna mundi ég sko ekki versla! Svo við fórum heim tómhent. En þetta er ennþá draumur - fjarlægur draumur...

Um næstu helgi erum við svo að fara aftur út á lífið. Vinur okkar hann Don Fenwick er með góðgerðakvöld þar sem fullt af fólki hittist og borðar saman og gefur pening til góðs málstaðar. Don var með svona í fyrra og það var alveg æðislega vel heppnað, Elvis mætti á staðinn og söng og safnaðist fullt af pening.

Og svo er meira um næstu helgi en þá er búið að bjóða okkur í tveggja ára afmælið hans Alejandro Egils. Hugsa sér!! 2ja ára!! Verður svo skrítið að sjá hann aftur, ekki búin að sjá hann í þónokkurn tíma svo hann er eflaust orðinn alger alger risi!! Verður svo gaman að sjá hann og foreldra hans :-)

Annars er það bara yfir og út í bili.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 20:42:32 / henny

Og dugnaðurinn ætlar engan endi að taka....

Það er komin ný skoðanakönnun!

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 10:47:13 / henny

Löng helgi

12 maí 

Ákvað fyrir nokkru að taka mér frí þann 11 maí og hlakkaði mikið til. Svo kom svo skemmtilega til að hún Bryndís Rut átti leið til Lundúna þessa helgi og tókst okkur að eyða saman tíma... og peningum :-) Það er bara svo gaman að versla. Reyndar stakk ég upp á því að við myndum halda okkur við þetta hverfi hér í kringum mig þar sem ég var óvart soldið upptekin frá 15.00-17.00 og gat þar afleiðandi illa stungið af á Oxford street. Verandi eins og hún er, þá tók Bryndís sem betur fer vel í það, sérstaklega miðað við það að þetta var alls ekki planið hjá henni!

Greyið endaði svo á því að sitja í bíl bíðandi eftir mér klukkutímum saman, en okkur tókst að troða versli inn í daginn og ég vona að hún hafi skemmt sér eitthvað og sé sátt við daginn í heild!! Virkilega gaman að sjá þig Bryndís og vona ég að okkur takist að hittast fljótlega aftur!!

18 júní

Nú, já - það er langt um liðis frá því að ofangreint var skrifað. Nú er kominn 18 júní en ég byrjaði þetta blessaða blogg þann 12 maí!! Þetta hefur setið 'óbirt' inni á svæðinu mínu og yfir mig hefur lagst feikna leti. Sem ég þarf nú að kveðja því um margt er að skrifa.

Auður vinkona hefur einnig heiðrað okkur með nærveru sinni nú nýlega og tókst það mjög vel, okkur fannst feikna gaman og okkur hlakkar til að hitta þig aftur.

Miðað við undanfarnar heimsóknir þá er hérna smá listi yfir það sem hefur ekki klikkað í heimsóknunum og vakið mikla ánægju yfirhöfuð:

1- Tesco. Er opið allan sólarhringin og selur allt mögulegt. Er 5 mín labb frá okkur.

2 - Primark í Woking. Þetta er 15 mín akstur frá okkur og er í shopping malli þar sem einnig er Debenhams, Toys 'r' us og maaargt fleira.

3 - Staines. Er næsti bær hjá okkur og þarna er allt mögulegt... allt nema Primark.

4 - The Queens Arms - Þetta er hverfis pöbbinn okkar og er alveg frábær. Mæli eindregið með honum!

Svo núna síðastu helgi þá voru heija og Pedro í heimsókn hérna í UK. Pedro var á einhverju námskeiði í Guildford og við Stuart skelltum okkur þangað á föstudagskvöldið þar sem planið var að fara út að borða. Við fórum á TGI Fridays og fengum þar góðan mat. Eftir það röltum við á pöbb og fengum okkur einn drykk svona rétt fyrir háttinn. Svo skutluðum við þeim skötuhjúum á hótelið og héldum heim á leið eftir alveg frábært kvöld. Takk fyrir okkur. Guildford er alveg frábært og ég er viss um að í næstu heimsóknum eigi hann eftir að vera mjög vinsæll viðkomustaður og komast hátt á ofangreindum lista. Bærinn er heillandi og þarna virðist vera mjög gott 'versl'.´

Ég er búin að vera svo heppin að fá þessar heimsóknir og þakka ykkur kærlega fyrir. Þetta er alveg búið að hressa mig óendanlega og gleðja mikið. Ekki skemmir að ég hef verið blessuð.... með íslensku nammi... verst er að hann Stuart er kominn upp á bragðið og borðar nú lakkrískonfekt eins og herforingi og er sannfærður um að Tasilaq og Narsarsuaq hljóti að vera hluti af Íslandi. Gjörsamlega byggt á hrifningu hans af Kúlusúkki sem hann er alveg fallinn fyrir.

Talandi um Stuart, þá er hann nýbúinn að eiga afmæli og ég bauð fjölskyldunni hans í kaffiboð að íslenskum hætti sem tókst alveg feiknavel. Var reyndar ekki með heitan aspas og skinku rétt, þau eru ekki alveg tilbúin í það, en kökur og sætabrauð og vakti þetta mjög svo mikla lukku. Alltaf gaman þegar vel tekst til!

En nóg um það, ætla að birta þetta áður en mér tekst að gefast upp á tölvuheimum.

Yfir og út.


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 12:01:13 / henny

www.egilsorka.is

Halló halló,

Bara svona rétt örstutt til að reyna að hvetja alla til að kjósa hann bróður minn á www.egilsorka.is - Hans er 'fyrsta vísa', þessi sem byrjar 'Það er brjálað að gera' og er með orðið 'stera' í. Og svo senda!

Hann fór í einhvern 'orkukassa' og er nú upp á móti öðrum gæja í vísu 'bráðabana'.

Það má kjósa eins oft og maður vill / getur!! :-)

 Takk kærlega allir fyrir hjálpina :-)

Henný


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti